Stóri Litli-Ívar
Sunday, December 11th, 2005
Stóri Litli-Ívar, nýfæddur systursonur minn, umluktur verndarhöndum foreldra sinna
Hann „Litli-Ívar“ systursonur minn fæddist í nótt.
Vinnuheitið reynist vera rangnefni; hann er hreint ekkert lítill.
Hann er eins og svosem tveggja mánaða barn, en meira hærður.
57 sentimetrar og rúmar 18 merkur, og tók andvirði nokkurra maraþonhlaupa í klukkustundum og kaloríum. Dóra er hetja.
Móður og barni heilsast vel. Sogklukkuáhrif eru strax að rjátlast af honum, og hann hefur sýnt af sér rósemi og jákvætt lundarfar það sem af er ævinni.
Hann hefur sama hökuskjálftahæfileikann og Ari Sigurður frændi hans, og undurljúfan kjökurtón sem einmitt hljómaði þegar þessi mynd var tekin. Heimsóknarnefndin hafði haft af honum lúrinn.
Móðuramman gat þess að það væri „ekki hægt að spilla þessu barni.“




