Fugato » Icelandic

Allranýjustu fréttir
Fyrirsögn á forsíðu Blaðsins á þriðjudag:

Betra að safna fyr-

ir hlutunum í stað

þess að taka lán

Loksins er komin niðurstaða í þetta aldagamla vafamál.

Dósaskoðanir
Tveir ágætir menn sem hafa líklega varið meira tíma en við Varríus í hagfræðigrúsk

Sá ágæti Varríus kvað, um viðhorf hagfræðings til einkaeignar vatns:

Af hverju hagfræðimenntun er heppilegur bakgrunnur fyrir upplýst viðhorf til svoleiðis mála er áreiðanlega merkileg stúdía, svolítið eins og að biðja múslímskan Imam að vera álitsgjafi um trúfrelsi. Út kemur einörð skoðun, en undirbyggingin ekki endilega traust, enda svarið gefið fyrirfram.

Hvers vegna skyldi hann nefna múslimskan imam en ekki t.d. siðrænan húmanista á Vesturlöndum, sem örugglega ætti ekki síður fyrirfram tilbúið svar um trúfrelsi?

Ég ætla að voga mér að giska: það er vegna þess að það fyrirfram gefna svar hefði Varríusi (eins og mér) líkað vel. Samlíkingin hefði þá misst marks, því að málið er að Varríusi líkar illa hið fyrirfram gefna svar hagfræðingsins um einkaeign vatns.

Það sem Varríusi finnst sökka er nefnilega ekki að svarið sé gefið fyrirfram.

Það sem honum finnst sökka er bara að fyrirfram gefna svarið fellur ekki að hans eigin fyrirfram gefnu svörum.

Hér varð Varríusi líklega á að þykjast gagnrýna eitt, en gagnrýna í raun annað.

Er þetta sanngjarnt gisk hjá mér?

(Hann gagnrýnir reyndar líka tiltekin atriði í málflutningi þessa hagfræðings. Það er ekki til umræðu hér.)

„Hagfræðingar sökka af því að svör þeirra eru fyrirfram gefin.“ Big deal. Svör næstum allra eru fyrirfram gefin. Kom afstaða Varríusar einhverjum kunningja hans á óvart?

Nú slengi ég fram staðhæfingu í kæruleysi: það heyrir til undantekninga að fólk móti sér skoðun í hverju einstöku máli.

Það er erfitt og tímafrekt að móta sér skoðun. Ótækt að reyna að gera það alla daga. Okkur liggur á og við erum þreytt og búin að drekka of mikið kaffi og sváfum of lítið af því að við vöktum fram eftir við að blogga eða rugga magaveiku kornabarni eða horfa á endursýnda sitcom-þætti frá Sameinuðu amerísku furstadæmunum eða allt ofangreint. Skítt með að móta sér skoðun, við gerum nokkuð sem er miklu fljótlegra og áreynsluminna: við tökum þær örfáu skoðanir sem við höfum þegar hróflað upp eða fengið að láni frá þeim sem við litum upp til í uppvextinum (hægrimenn eru harðbrjósta fjársvindlarar, vinstrimenn eru draumóramenn skertir allri greind nema tilfinningagreind, múslimar eru brjálaðir ofbeldismenn, kristnir eru hrokafullir rasistar, Davíð Oddsson er valdasjúkur krimmi, Davíð Oddsson er fimmta landvættin, o.s.frv.), og við mátum þær við deilumál dagsins, veljum þá sem passar best, og málið er dautt.

Þetta er afar praktískt og vinnusparandi.

Og þetta er ofureðlilegt og ekkert að því. Eða væri ekkert að því ef við endurskoðuðum skoðanir okkar við og við … en það er alltof mikið vesen og lífið allt of stutt. Við endurnýtum skoðanirnar nær alltaf óbreyttar. Það er eini gallinn. Að endurnýta þær er allt í lagi út af fyrir sig.

Vel að merkja: Varríus gerir þetta örugglega ekki neitt meira en ég sjálfur. Svona almennt og yfirleitt. En þessi skoðun mín á skoðanaendurnýtingu varð þó til bara rétt í þessu, aldrei þessu vant. Undur og stórmerki. Hún er glæný. Og hraðsoðin og lítt úthugsuð og sennilega finnst mér þetta asnalegt á morgun og ég sé eftir öllu saman. Þarna sjáið þið. Lærið af mistökum mínum. Notið bara niðursoðnar skoðanir. Það er affarasælast.

Og farið fyrr að sofa. Ólifnaður er þetta.

Til hamingju …
„Til hamingju Glitnir,

með að fæðast í gær …“

Insider tip úr Landsbankanum: við erum alveg að fara að kasta 120 ára gömlu nafninu, frá og með morgundeginum munum við heita „Lýsing“ og sérhæfa okkur í fjármögnun bíla og vinnuvéla. Allir að drífa sig að shorta LAIS!  :-)

(Eins gott að það les þetta enginn, annars myndi regluvörður flengja mig bláan fyrir svona gáleysistal.)

Jakobssynir
But I would walk five hundred miles

And I would walk five hundred more

Just to be the man who walked a thousand miles

To fall down at your door

Hér úti á götu heyrði ég rétt í þessu einhverja glaðværa unga menn syngja lagið „500 Miles“ og skyndilega fullmótaðist hugsun í höfðinu á mér sem hefur verið þar myndlaus og þokukennd frá því á táningsárum mínum þegar ég horfði á Gettu betur:

Ármann og Sverrir Jakobssynir minna mig á The Proclaimers, sér í lagi á þetta lag.

Og öfugt.

Það er ekki útlitið. Ekki eru það fræðistörfin eða tónsköpunin. Ég veit ekkert hvað það er og ég meina ekkert illt með því. En það hefur verið þannig hálfa ævi mína, og ég sé ekki fram á að það breytist.

Loft er snævi blandið
Sumarið sem álpaðist inn í febrúarbyrjun hefur áttað sig á mistökunum og haft sig á brott í bili. Þurfti að fara í peysu utan yfir stuttermabolinn til að labba í vinnuna í dag. Peysu! Ekki nokkur sanngirni í þessu.

Þrjár túristatáningatelpur hjúfruðu sig saman fyrir utan Deli og rýndu í kort sem þær reyndu að halda kyrru í rokinu. Ég hló. Þær hlógu. „Having a good trip?“ „It’s great, thanks!“

Hvað fær þrjár vinkonur utan úr heimi til að verja fríinu sínu á Íslandi í febrúar?

Að túrista sig á hol.

Ofbeldi og asnakjálkar
Asnakjálki með meiru

15Og hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns. 16Þá sagði Samson:

“Með asnakjálka hefi ég gjörsamlega flegið þá,

með asnakjálka hefi ég banað þúsund manns!”

17Og er hann hafði mælt þetta, varpaði hann kjálkanum úr hendi sér, og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí.

— Dómarabókin, 15:15-17

Þannig var nú það.

Þetta eina sanna og nýtt og betra
Markaðsdeildinni láðist að hugsa út í að þessar flöskur verða alltaf settar hlið við hlið í búðinni.

Kannski er rígur á milli færibandanna í Ölgerðinni.

Eða kannski er þetta bara ég.

Annars ótengt appelsíni: heyrir einhver hvað Jónsi í Sigur-Rós segir í lokin á „Viðrar vel til loftárása?“ Eftir svaka ruslatunnuendi segir hann: „Þetta var…“ hvað?

Er lömbin þagna heyrist aðeins í úlfunum
Svona lagað er ekki í deiglunni á Deiglunni.

Sumir hafa ákveðið að skrifa ekki undir áskorunina til að fylkja sér ekki í hóp hinna vanstilltu.

Þegar hófstilltar raddir þegja gefa þær hinum trylltu orðið … og þar með málstaðinn.

Þannig er skálkum gefið það skjól að andstæðingar þeirra séu eintómir öfgamenn.

Áskorunin er hófsöm og orðvör og allsendis laus við þann „keim af galdrafári og krossfestingalosta“ sem Birgi er eðlilega í nöp við. Vitanlega er öllu heilbrigðu fólki illa við krossfestingalosta … enda er það að hluta til slíkur losti sem DV er gefinn að sök.

Tilvist óheilbrigðrar andúðar á ritstjórn DV er furðuleg ástæða til að sniðganga heilbrigða gagnrýni á hana.

Það er óþarft að láta góðan málstað vondum flytjendum eftir.

Gullkorn dagsins og veðurfregnir
Nokkur gullkorn

Gullkorn dagsins er ekki þetta:

Ástæða er til að taka fram að Greiningardeild spáir ekki 1.100% hækkun hlutabréfa í ár.

— Vegvísir Greiningardeildar Landsbankans

og ekki heldur þetta:

Margir hafa orðið fyrir afbroti

— fyrirsögn á mbl.is

heldur þetta:

Árásirnar á DV eftir atburðinn vestra kunna að ríða blaðinu að fullu, að minnsta kosti núverandi yfirmönnum og áhöfn. Það væri ósanngjarn endir máls. Mistök – jafnvel slæm mistök – réttlæta ekki aftöku. Ekki á Ísafirði. Ekki í Reykjavík.

— Mörður Árnason á vefsíðu sinni í dag

Jónas og Mikael reknir frá DV og lifa við hestaheilsu við ritstörf eða kannski við ritstjórn spánnýs lægstuhvatablaðs. Gísli tekur líf sitt í örvæntingu, ærusviptur, saklaus fyrir lögum. Smekkleg samlíking, þetta.

Og „mistök?“

„Æ, var hann þá ódæmdur, kallinn? Það var ljótan — tek þetta á mig, afsakið margfaldlega!“

DV hefur lifað á kerfisbundinni ástundun slíkra „mistaka“ lengi.

Hæðir og lægðir

Mörður talar um „storm“ og það er fyrirtaks samlíking; vindur blæs þegar loft leitar úr háþrýstisvæðum inn í djúpar lægðir, og íslensk veðrátta býður ekki upp á öllu dýpri lægðir en DV hefur verið undanfarin ár. Þeir soguðu þetta til sín vitandi vits, og nú er loksins farið að blása eitthvað.

Samlíkingin er líka lokkandi að því leyti að lægðir hverfa alltaf á endanum. En nýjar koma líka alltaf í staðinn. Eftir að DV hverfur eða skánar finnst áreiðanlega eitthvert nýtt 932 millibara lágkúrublað til að misbjóða heilbrigðu fólki og gera út á hinn furðulega þorsta sumra í blóð og leðju. Og hreykja sér af kjarki sínum og sannleiksást.

Kannski reynir Mörður að blása á móti vindinum þá líka.

En ég blæs með.

Háskaleg fallhæð af hestbaki
Eins gott að enn heyrist rödd hófs og skynsemi inn á milli:

Hár hestur. Á stalli.

Ekki tími fyrir hróp og köll

Harmleikurinn á Ísafirði er þess eðlis að núna eigum við að sýna stillingu og tillitssemi. Við vitum ekki hverjar aðstæður voru, vitum ekki hvernig sjálfsvígið bar að, vitum ekki um atburðarás sem á undan fór. Látum lögregluna og Blaðamannafélagið rannsaka málið, leyfum aðstandendum öllum að ná sér eftir atburðinn. Ræðum málið síðan af yfirvegun og í alvöru.

Þessvegna ætla ég ekki, að minnsta kosti að sinni, að rita nafn mitt undir netáskorun þar sem sökudólgur hefur þegar verið fundinn og skal refsað strax.

— Mörður Árnason

Gott og vel. Yfirvegun er góð. En áskorunin ógurlega hljóðar svo:

Að gefnu tilefni skorum við undirrituð á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Jafnframt eru eigendur og útgefendur blaðsins minntir á þá samfélagslegu ábyrgð sem fylgir því að gefa út fjölmiðil.

Eru þetta hróp og köll, vanstilling og tillitsleysi, óyfirvegað og ekki í alvöru, sakfelling og refsing?

Eða láðist Merði kannski að lesa áskorunina áður en hann steig á bak háa hestinum?

Undirskriftir gegn ritstjórnarstefnu DV
Undirskriftin mín, svona um það bil.

Ég gef almennt fremur lítið fyrir undirskriftasafnanir, sérstaklega á netinu.

Jónas og Mikael standa líklega frammi fyrir of miklum sokknum kostnaði í siðferðisnýsköpun sinni til að fara að endurskoða hana úr þessu.

En sagan segir að eigendur DV séu nú þegar lítt hrifnir af ritstjórnarstefnunni; þá er svona áskorun mögulega ekki til einskis.

Skrifið undir.

Græðgi og löngun og athygli og þunglyndi
Matgráðugur ungur maður.

Græðgi er athyglisbrestur. Hún er það hugarástand að vera ekki með hugann við líf sitt [...]

— Guðmundur Andri Thorsson, þarna

Mér finnst líkingunni ábótavant. Athyglisbrestur skilst mér að sé að geta ekki fest athyglina við neitt. En þeir gráðugu eru með athyglina hnoðneglda við einn þátt í tilvist sinni. Þeir sem eru gráðugir í peninga eru það vegna þess að þeir hugsa varla um annað. En við peninga festa þeir athyglina alveg ljómandi vel. Og þeir sem eru gráðugir í eitthvað annað (athygli, hitt kynið, sama kynið, barnabörn, fíkniefni, gæskustolt) einbeita sér prýðilega að því. Þeir sem eru alveg gersneyddir græðgi eru síðan kallaðir þunglyndir.

Jæja, allt í lagi. Þá sem skortir langanir (og þar með lífsgleði) kalla ég þunglynda(1). Það er óheilbrigt að hafa ekki langanir, og þá heilsufarslega nauðsynlegt að hafa þær. Langanir eru í lagi. Græðgi er þá bara löngun hlaupin út í öfgar — þ.e. farin að negla athyglina svo fast við eina tegund lífsnautnar að áhorfendum (t.d. Guðmundi Andra) finnst það óheilbrigt.

En Guðmundur Andri kallar græðgina ekki ofathygli eða einhygli heldur „athyglisbrest,“ líklega vegna þess að hún dregur athyglina frá því sem honum finnst að eigi frekar að veita athygli. „Á meðan [...] líður stundin hjá, raunverulega stundin.“ En eitthvað segir mér að fjármálapésar lifi sig af alefli inn í mómentið þegar þeir ljúka vel heppnaðri féfléttu; að þeir upplifi það eins og píanisti upplifir þá unun að smellnegla coda-kaflann, eða skáld þegar hugmyndin ratar kristaltær í knappa framsetningu. Þetta er þeirra „thing.“ Það er fullgilt að finnast þetta vera lélegt „thing“ og bera ekki virðingu fyrir því (ég er t.d. ekkert gefinn fyrir það, að vísu að óreyndu). En er ekki óþarfa yfirlæti að segja „vesalings maðurinn að vera svo vitlaus eða veikur að finna ekki lífsfyllingu sína í sömu hlutum og ég“ … ? Voðalegt besserviss. Svona eins og í mér núna.

Okkur er frjálst að vorkenna gróssérunum fyrir óhamingju þeirra. Kannski hittir sú vorkunn í mark, kannski ekki; mögulega skilja þeir hvorki upp né niður í meðaumkuninni ef þeir rekast á grein Guðmundar Andra yfir morgunkampavíninu, eftir að þeim hefur heppnast allt sem þeir tóku sér fyrir hendur í óskafaginu sínu. En mögulega eru þeir líka að visna að innan og gráta sig í svefn undan tilvistarkreppunni; kannski hitti Guðmundur Andri naglann beint í andlitið, eins og Hjalti vinur minn orðar það. Ekki veit ég. Kannski veit Guðmundur Andri það betur.

Svo er græðgi alls konar; þeir sem ekki eiga þess kost að láta undan peningagræðgi sinni hafa um nóg annað að velja til að vera gráðugir í. Sumir eru meira að segja haldnir ofsagræðgi í tilvísunarfornafnið „sem“:

Flækja.

Í dag rímar hefðbundin félagshyggja og áhersla á velferðarbætur við kvíðann sem hefur grafið um sig í brjóstum þeirra sem eru röngu megin við gjárnar sem myndast þegar bilið gleikkar milli samfélagsflekanna sem eru í dag teygðir sundur af hraðvaxandi launaójöfnuði.

— Össur Skarphéðinsson, þarna

Æi, mig langaði bara sisvona að lauma þessu að. Oft mælist honum betur! Og ritast.

(Löngu síðar fannst enn betra dæmi um sem-fíknina.)

Guðmundur Andri skrifar líka um græðgina sem andfélagslega hegðun; um áhrif græðginnar á þá sem horfa upp á hana; um andúð fólks á þeim gráðugu. Það er allt annar kapítuli og utan þessarar umræðu/einræðu; þær skoðanir kann ég ekkert að besservissa um, en trúin á innri óhamingju og andans örbirgð hinna fégráðugu held ég hljóti að vera eintóm óskhyggja … um sálrænan kjarajöfnuð.

(1) Ég fer hér áreiðanlega fullfrjálslega með sjúkdómsheitið þunglyndi; ég veit ekki røvhul um það (þannig er vinkonu minni einni tamt að áminna mig um fávisku mína í flestum hlutum, á kjarnbetri íslensku), en ég á við fólk sem aldrei virðist líta glaðan dag og aldrei fær neitt kikk út úr neinu. Klínískt þunglyndi er örugglega eitthvað annað og meira, en þetta lundarfar finnst samt leikmanninum mér vera réttmæt andstæða þess að vera léttlyndur.

Stóri Litli-Ívar
Stóri Litli-Ívar, nýfæddur systursonur minn, umluktur verndarhöndum foreldra sinna

Hann „Litli-Ívar“ systursonur minn fæddist í nótt.

Vinnuheitið reynist vera rangnefni; hann er hreint ekkert lítill.

Hann er eins og svosem tveggja mánaða barn, en meira hærður.

57 sentimetrar og rúmar 18 merkur, og tók andvirði nokkurra maraþonhlaupa í klukkustundum og kaloríum. Dóra er hetja.

Móður og barni heilsast vel. Sogklukkuáhrif eru strax að rjátlast af honum, og hann hefur sýnt af sér rósemi og jákvætt lundarfar það sem af er ævinni.

Hann hefur sama hökuskjálftahæfileikann og Ari Sigurður frændi hans, og undurljúfan kjökurtón sem einmitt hljómaði þegar þessi mynd var tekin. Heimsóknarnefndin hafði haft af honum lúrinn.

Móðuramman gat þess að það væri „ekki hægt að spilla þessu barni.“

Væntumþykja
Ég fékk nafnlaust sms í dag, þar sem ég gekk eftir Laugaveginum til að sækja bílinn minn á Grand Hótel Reykjavík eftir góðgleði gærkvöldsins.

Skilaboðin voru þessi:

From: OgVodafone

ther thykir vaent um
mözduna thina?

Sæktu tér nyja hringitòna à
ogvodafone.is - Og Vodafone

Ég beið eftir því næsta („Settu tha x m.kr. i omerktum sedlum undir bekkinn i austurhorninu a BSI klukkan tvo, annars heyrirdu mjukt malandi motorsud hennar ekki framar“) en það kom aldrei. Kannski átti ég að sækja þessa bannsettu hringitóna til að bjarga Mözdunni minni? Hún var alltént enn þar sem ég skildi við hana, og ómeidd.

Ég veit ekki um neitt samhengi sem gæti skýrt þetta — hef ekki rætt bílinn minn (sem mér þykir vissulega svolítið vænt um, svona að því marki sem mér þykir vænt um verksmiðjuframleidda dauða hluti almennt) við neinn síðustu daga.

Eina tengingin sem mér dettur í hug er að lokaprófið í Merkjum og kerfum var nýafstaðið þegar þetta sms barst; þetta gæti verið nemandi að hafa í hótunum við mig vegna yfirvofandi einkunnagjafar. Ég efa það samt. Eftir eitt misseri í Merkjum og kerfum á enginn eftir orku til illvirkja.

Skýringar óskast!

Öll Nótt úti
Nú fer þetta fyrst að verða áhugavert. Í Blaðinu 19. nóv.:

Fallbeygingar kvenmannsnafna hafa verið mikið í umræðunni síðustu daga. Sigurjón Kjartansson gerir þetta að umtalsefni í DV í gær þar sem hann bendir á að Mogginn hafi birt um daginn umfjöllun um Ilmi Kristjánsdóttur, þar sem sagði „…Stelpurnar með Ilm í fararbroddi.“, Sigurjón hneykslast á blaði allra landsmanna fyrir að gera svona klaufaleg mistök, en telur blaðinu þó til tekna að hafa beygt nafn Silvíu Nóttar á „réttan“ hátt, þ.e. „Silvíu Nætur“, sem er raunar rangt líka. Eins og sést nefnilega berlega á nafninu Ilmur, þá beygjast eiginnöfn oft á annan hátt en samheiti þeirra í málinu. Það á einnig við um nafnið Björt og, merkilegt nokk, nafnið Nótt.

Einhverjir kynnu að ætla sem svo að þar með hafi ég rangt fyrir mér í undangenginni umræðu. En það er ekki svo!

Jæja, allt í lagi. Það er líklega svo.

„Líklega,“ í þeim skilningi að þessi staðhæfing Blaðsins og álit Mannanafna punktur com eru saman sterkar vísbendingar um ríkjandi málhefð. Orðabók Háskólans býður reyndar upp á báðar orðmyndirnar, en kallar orðmyndina „Nóttar“ þar með ekki ranga. Við Sigurjón erum því dálítið einir á báti.

Ef málhefðin reynist hneigjast til „Nóttar,“ þá er síðan áhugavert að velta fyrir sér hvernig það varð raunin. Samkvæmt þjóðskrá og Íslendingabók var þetta nafn fyrst gefið árið 1976; þá fengu tvær stúlkur það, en síðan engin þar til í nóvember 1984. Það voru því líklega örfáir einstaklingar sem bjuggu til hina ríkjandi málhefð um þetta nafn. Það hlýtur að vera óvenjuleg tilurð orðmynda. Það kemur á óvart ef þau ákváðu upp úr þurru að nýja nafnið Nótt skyldi beygjast öðruvísi en gamla orðið nótt; ætli þau hafi haft einhverjar ástæður fyrir því? Eða gert það óvart eins og ég hélt að Blaðið hefði gert? Eða var þetta kannski bara helber prakkaraskapur í þeim?

Hvað sem því líður er gaman að sjá hve hugmyndaríkir sumir eru í að velja nöfn framan við Nótt: í þjóðskrá eru þrjár með nafnið Dagbjört Nótt, tvær heita Hrafntinna Nótt (vonandi báðar skjannaljóshærðar) og ein Helga Nótt! Það er rammíslenskur sumarfílingur í nöfnunum Sóley Nótt og Sunneva Nótt. Og ég vona að hún litla Kristel Nótt taki því með jafnaðargeði þegar hún lærir eftir allmörg ár um eitt frægasta pogrom sögunnar.

En þessi skemmtilegi útúrdúr var auðvitað bara til að slá á gálgafrest hinu óumflýjanlega: það virðist núna líklegt að beyging Blaðsins sé í samræmi við ríkjandi málhefð, villan því mín samkvæmt eigin skilgreiningu, og Blaðið saklaust af því fúski sem ég sakaði það um. Og það sem meira er: hvort sem þetta reynist ríkjandi málhefð eður ei, þá er ekki líklegt heldur öruggt að ég er sjálfur sekur um fúsk: ég hirti ekki um að komast á snoðir um ríkjandi málhefð, heldur gerði ráð fyrir að hún væri sú sem mér þótti sjálfsagt út frá málfræðilegu samræmi að hún væri. Talaði af bjargfastri sannfæringu um nokkuð sem ég hafði ekki raunverulega vissu um. Vanrækti það að kanna málið.

Málvillur eru til, eins og ég skilgreindi þær. Rétt og rangt mál er til. Og vandvirkni og fúsk eru hvort tveggja til, líka í málnotkun. Það á að ætlast til þess að fólk vandi sig. Það á að hía á þá sem fúska. Að þessu sinni var það ég sem fúskaði. Hí á mig. Hí, rækilega, á mig.

Baal, ég vona að þú sért núna á svipinn eins og þessi bráðskemmtilegi skoski tengdafrændi Vanessu á myndinni. Njóttu þess, kæri vin!