Loft er snævi blandið

Snowflake

Sumarið sem álpaðist inn í febrúarbyrjun hefur áttað sig á mistökunum og haft sig á brott í bili. Þurfti að fara í peysu utan yfir stuttermabolinn til að labba í vinnuna í dag. Peysu! Ekki nokkur sanngirni í þessu.

Þrjár túristatáningatelpur hjúfruðu sig saman fyrir utan Deli og rýndu í kort sem þær reyndu að halda kyrru í rokinu. Ég hló. Þær hlógu. „Having a good trip?“ „It’s great, thanks!“

Hvað fær þrjár vinkonur utan úr heimi til að verja fríinu sínu á Íslandi í febrúar?

Að túrista sig á hol.

One Response to “Loft er snævi blandið”

  1. Orri Says:

    Líkt og þær myndi ekki láta veður með smá karakter aftra mig í að skoða heiminn.
    Þær hafa kannski allt sitt líf búið í einsleitu veðurfari og finnst æðislegt að kynnast smá öðruvísi veðri.
    Þegar ég er í útlöndum finnst mér t.a.m. voðagaman ef ég fæ að sjá almennilegt þrumuveður.