Jakobssynir
Sunday, February 19th, 2006
But I would walk five hundred miles
And I would walk five hundred more
Just to be the man who walked a thousand miles
To fall down at your door
Hér úti á götu heyrði ég rétt í þessu einhverja glaðværa unga menn syngja lagið „500 Miles“ og skyndilega fullmótaðist hugsun í höfðinu á mér sem hefur verið þar myndlaus og þokukennd frá því á táningsárum mínum þegar ég horfði á Gettu betur:
Ármann og Sverrir Jakobssynir minna mig á The Proclaimers, sér í lagi á þetta lag.
Og öfugt.
Það er ekki útlitið. Ekki eru það fræðistörfin eða tónsköpunin. Ég veit ekkert hvað það er og ég meina ekkert illt með því. En það hefur verið þannig hálfa ævi mína, og ég sé ekki fram á að það breytist.



