Ofbeldi og asnakjálkar
15Og hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns. 16Þá sagði Samson:
“Með asnakjálka hefi ég gjörsamlega flegið þá,
með asnakjálka hefi ég banað þúsund manns!”17Og er hann hafði mælt þetta, varpaði hann kjálkanum úr hendi sér, og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí.
— Dómarabókin, 15:15-17
Þannig var nú það.

January 29th, 2006 at 11:12 pm
Og upp frá því voru kjánar kallaðir asnakjálkar. Þ.e. skv. brandarabókinni miklu, ekki satt?
January 30th, 2006 at 10:11 am
Og enn í dag er nóg framboð af asnakjálkum til að gerast viljalaus verkfæri þeirra sem sækjast eftir því að bana þúsund manns kátir í bragði.
En það hlýtur að vera mikið vandaverk að flá mann (hvað þá þúsund manns) með asnakjálka. Tennurnar hafa líklega fylgt með kjálkanum (hann var nýr), en eru jórturdýr nokkuð með beittar tennur?