Þetta eina sanna og nýtt og betra

appelsin.jpg

Markaðsdeildinni láðist að hugsa út í að þessar flöskur verða alltaf settar hlið við hlið í búðinni.

Kannski er rígur á milli færibandanna í Ölgerðinni.

Eða kannski er þetta bara ég.

Annars ótengt appelsíni: heyrir einhver hvað Jónsi í Sigur-Rós segir í lokin á „Viðrar vel til loftárása?“ Eftir svaka ruslatunnuendi segir hann: „Þetta var…“ hvað?

3 Responses to “Þetta eina sanna og nýtt og betra”

  1. Þorkell Says:

    Hreint dásamlegt.

    Minnir mig á auglýsingar Disney þar sem allar kvikmyndir þeirrar eru sagðar vera “meistaraverk” með “versta illmenni sögunnar,” og “bestu lögunum”.

  2. Hr. Pez Says:

    Mér heyrist það vera “Þetta var… glæsilegt.”
    Það má þó vera að mér misheyrist, þar sem það koma einhvers lags skruðningar ofaní síðasta orðið.

  3. Stefán Says:

    hann segir Þetta var pörfekt:D