Er lömbin þagna heyrist aðeins í úlfunum

Spænski rannsóknarrétturinn í rjúkandi brennslu

Svona lagað er ekki í deiglunni á Deiglunni.

Sumir hafa ákveðið að skrifa ekki undir áskorunina til að fylkja sér ekki í hóp hinna vanstilltu.

Þegar hófstilltar raddir þegja gefa þær hinum trylltu orðið … og þar með málstaðinn.

Þannig er skálkum gefið það skjól að andstæðingar þeirra séu eintómir öfgamenn.

Áskorunin er hófsöm og orðvör og allsendis laus við þann „keim af galdrafári og krossfestingalosta“ sem Birgi er eðlilega í nöp við. Vitanlega er öllu heilbrigðu fólki illa við krossfestingalosta … enda er það að hluta til slíkur losti sem DV er gefinn að sök.

Tilvist óheilbrigðrar andúðar á ritstjórn DV er furðuleg ástæða til að sniðganga heilbrigða gagnrýni á hana.

Það er óþarft að láta góðan málstað vondum flytjendum eftir.

Comments are closed.