Gullkorn dagsins og veðurfregnir
Nokkur gullkorn
Gullkorn dagsins er ekki þetta:
Ástæða er til að taka fram að Greiningardeild spáir ekki 1.100% hækkun hlutabréfa í ár.
og ekki heldur þetta:
Margir hafa orðið fyrir afbroti
heldur þetta:
Árásirnar á DV eftir atburðinn vestra kunna að ríða blaðinu að fullu, að minnsta kosti núverandi yfirmönnum og áhöfn. Það væri ósanngjarn endir máls. Mistök – jafnvel slæm mistök – réttlæta ekki aftöku. Ekki á Ísafirði. Ekki í Reykjavík.
Jónas og Mikael reknir frá DV og lifa við hestaheilsu við ritstörf eða kannski við ritstjórn spánnýs lægstuhvatablaðs. Gísli tekur líf sitt í örvæntingu, ærusviptur, saklaus fyrir lögum. Smekkleg samlíking, þetta.
Og „mistök?“
„Æ, var hann þá ódæmdur, kallinn? Það var ljótan — tek þetta á mig, afsakið margfaldlega!“
DV hefur lifað á kerfisbundinni ástundun slíkra „mistaka“ lengi.
Hæðir og lægðir
Mörður talar um „storm“ og það er fyrirtaks samlíking; vindur blæs þegar loft leitar úr háþrýstisvæðum inn í djúpar lægðir, og íslensk veðrátta býður ekki upp á öllu dýpri lægðir en DV hefur verið undanfarin ár. Þeir soguðu þetta til sín vitandi vits, og nú er loksins farið að blása eitthvað.
Samlíkingin er líka lokkandi að því leyti að lægðir hverfa alltaf á endanum. En nýjar koma líka alltaf í staðinn. Eftir að DV hverfur eða skánar finnst áreiðanlega eitthvert nýtt 932 millibara lágkúrublað til að misbjóða heilbrigðu fólki og gera út á hinn furðulega þorsta sumra í blóð og leðju. Og hreykja sér af kjarki sínum og sannleiksást.
Kannski reynir Mörður að blása á móti vindinum þá líka.
En ég blæs með.
January 12th, 2006 at 10:26 pm
Fyrir stuttu síðan skrifaði ég nokkrar línur um DV og hvaða tilgangi þeir þjóna.
Því miður þá hefur umræddur póstur, á sorglegan hátt, snúist upp í andhverfu sína. DV er ekki lengur kjánalegt blað sem endurspeglar fréttaskort Íslands – blaðið er smánarblettur.