Háskaleg fallhæð af hestbaki
Eins gott að enn heyrist rödd hófs og skynsemi inn á milli:
Hár hestur. Á stalli.
Ekki tími fyrir hróp og köll
Harmleikurinn á Ísafirði er þess eðlis að núna eigum við að sýna stillingu og tillitssemi. Við vitum ekki hverjar aðstæður voru, vitum ekki hvernig sjálfsvígið bar að, vitum ekki um atburðarás sem á undan fór. Látum lögregluna og Blaðamannafélagið rannsaka málið, leyfum aðstandendum öllum að ná sér eftir atburðinn. Ræðum málið síðan af yfirvegun og í alvöru.
Þessvegna ætla ég ekki, að minnsta kosti að sinni, að rita nafn mitt undir netáskorun þar sem sökudólgur hefur þegar verið fundinn og skal refsað strax.
Gott og vel. Yfirvegun er góð. En áskorunin ógurlega hljóðar svo:
Að gefnu tilefni skorum við undirrituð á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Jafnframt eru eigendur og útgefendur blaðsins minntir á þá samfélagslegu ábyrgð sem fylgir því að gefa út fjölmiðil.
Eru þetta hróp og köll, vanstilling og tillitsleysi, óyfirvegað og ekki í alvöru, sakfelling og refsing?
Eða láðist Merði kannski að lesa áskorunina áður en hann steig á bak háa hestinum?
January 12th, 2006 at 6:59 pm
Ég verð að játa á mig svolitla vanstillingu. Ég er almennt mótfallinn siðareglunni “auga fyrir auga, tönn fyrir tönn” en ég myndi ekki sýta það ef einhver tæki upp á því að opna vefsíðu þar sem þeim sem eitthvað misjafnt vita um ritstjórana góðu væri boðið að koma þeim upplýsingum á framfæri. Þarf ekki að vera neitt stórvægilegt. Kannski fór Jónas á unglingsárum í tékk til að vita hvort hann hefði smitast af lekanda. Kannski ældi Mikael á fatlaða konu á fylleríi fyrir átta árum. Svona fróðleiksmolar ættu vel heima á slíkri vefsíðu. Mér þætti slíkt framtak að sjálfsögðu afskaplega klént. En er ekki aðalatriðið að sannleikurinn komi fram? Ekki er víst að allt væri satt sem sagt væri, en vefsíðugerðarmaðurinn mætti alveg setja sér eigin siðareglur og viðmið um hvenær sannleikurinn telst kominn fram. Óþarfi að burðast með viðmið réttarkerfisins.
Ég myndi vorkenna þeim kumpánum hóflega.
January 12th, 2006 at 8:40 pm
Ég rek nú nokkra vefi. Ertu að mana mig? :-)
Nei, seint legðist ég í sömu leðjuna og ég lasta hér á síðunum.
Okkur er líkt farið hér sem víðar: mér þætti slík aðför klén, og ekki vegna þess að ég vorkenndi fórnardýrunum.
(Fæ mig ekki til að kalla þá „lömb“)