I recommend getting your back trampled on to anyone

I was raised to be a good boy. This is a fine thing in itself, although for getting ahead in life it is grossly overrated; being a good boy tends to get you trampled on.
This week I received a trampling of a new and different kind, thanks to my old friend Smári.
Smári gave me a gift certificate for a Chinese massage for my birthday last month. I went this week, and got a full-body foot massage. I.e., was massaged, largely by feet, at Kínverska nuddstofan on Skólavörðustígur. It was … interesting. And damned good. I have little to compare to, though; this was my first professional massage. The masseur was a kindly Chinese man upwards of forty. He did not say much, though a “jæja” and a slight chuckle helped to ease my embarrassment when a push on my lower back let out some air.
There is a square hole in the bench to plant my face into. This makes sense, but the edge of that hole digs into my Adam’s apple when the nape of my neck is, well, stepped on. In lifting my throat to protect it, I was unable to relax the muscles being massaged. I wonder if there are people working in AutoCAD designing massage bench holes to work around this problem based on craniometric data for various world markets. Or if I just have a silly big larynx.
I liked the massage, during and afterwards, and will go again.
Oh, and the illustration is for silly laughs only. At no point in the process was my face stepped on, and certainly not by the foot of Cupid.
January 8th, 2006 at 9:45 pm
Vá! Flott mynd!
Veistu að ég er alveg sammála þér að þessir bekkir eru óþverri. Einu sinni fór ég í nudd og var með svakalegt kvef. Úff… Þá kvefaðist ég bara í gegn um gatið! Það má eflaust bæta úr þessu.
January 9th, 2006 at 1:04 am
Ég hafði einmitt áhyggjur af þessu líka, að afurðir nefkvefsins míns kynnu að vætla niður um gatið og ég kynni enga nægilega kurteisa leið til að gera viðvart á mandarín. En eitthvað lét slímið á sér standa — eins og ég.
Mér hlotnaðist líka óðara stærra áhyggjuefni; nuddarinn byrjaði á að tosa niður nærbuxnastrenginn og pota í ofanverða þjóhnappana á mér. Ég hélt að kannski hefði orðið einhver misskilningur um það hvaða þjónusta var pöntuð. Tungumálaörðugleikar og allt það. Gjafakortið var á kínversku; kannski var þetta einhver afar harðbrjósta húmor í Smára.
En þetta reyndist bara vera vöðvatæknileg vettvangskönnun; nokkur humm og ha og pot samtímis í þjóhnapp og öndverða öxl, og upp fór strengurinn aftur. Meir kom þjór minn ekki við sögu þann daginn. Ég hef ekki í annan tíma verið eins feginn því að stigið sé á mig.
January 17th, 2006 at 10:41 pm
Þessi ágæta afmælisgjöf var algjörlega “sponteiníus”. Þegar ég kom úr vinnunni seinni partinn á afmælisdeginum þá lagði ég leið mína í ríkið til þess að kaupa handa þér eitthvað gott viskí. Í sama mund og ég lagði bílnum fyrir framan ríkið heyrði ég útvarpsauglýsingu frá þessari nuddstofu og þá kviknaði þessi ágæta hugmynd… af hverju ekki að láta framandi mannveru ganga ofan á vini mínum honum til heilsubótar ? Mér kom til hugar að það yrði örugglega mun eftirminnilegra fyrir þig heldur en viskíið (sem aftur á móti gæti orsakað óminni og fíflslegar gjörðir). Ég hringdi því strax í nuddstofuna til að athuga hvort það væri opið hjá þeim…talaði við góðlega Kínverjann og hann svaraði öllum mínum spurningum með já-i (líka þegar ég spurði hann hvað væri opið lengi). Þegar ég var á stofunni til að kaupa gjafabréfið runnu á mig tvær grímur…góðlegi Kínverjinn kunni ekkert á einfaldan búðarkassann og ég var að borga honum fyrir að ganga ofan á vini mínum. Það hvarflaði því að mér að hann væri einhver algjör loddari og kynni ekkert til verka. Kannski myndi góðlegi kínverjinn “ganga í skrokk” á vini mínum, að hætti handrukkara. Kannski væru þetta handrukkarar frá kínversku mafíunni… nuddstofan væri bara yfirvarp til að hylja yfir ýmsa glæpsamlega starfsemi. “STOP IT !!” hugsaði ég og bægði þessum fáránlegu hugsunum frá. Þetta er bara nuddstofa Smári…bara nuddstofa!! Ég borgaði góðlega Kínverjanum og gekk rólega út.
Jæja, það er gott að þetta gekk allt vel. Nú veit ég að mér er óhætt að prófa þetta líka. hehe
January 17th, 2006 at 10:57 pm
Nau, frábært, annar orðaleikur yfir þetta! Hann gekk í skrokk á mér! Eða á skrokk á mér. Eða eitthvað. Takk kærlega, made my day!