Stóri Litli-Ívar
Stóri Litli-Ívar, nýfæddur systursonur minn, umluktur verndarhöndum foreldra sinna
Hann „Litli-Ívar“ systursonur minn fæddist í nótt.
Vinnuheitið reynist vera rangnefni; hann er hreint ekkert lítill.
Hann er eins og svosem tveggja mánaða barn, en meira hærður.
57 sentimetrar og rúmar 18 merkur, og tók andvirði nokkurra maraþonhlaupa í klukkustundum og kaloríum. Dóra er hetja.
Móður og barni heilsast vel. Sogklukkuáhrif eru strax að rjátlast af honum, og hann hefur sýnt af sér rósemi og jákvætt lundarfar það sem af er ævinni.
Hann hefur sama hökuskjálftahæfileikann og Ari Sigurður frændi hans, og undurljúfan kjökurtón sem einmitt hljómaði þegar þessi mynd var tekin. Heimsóknarnefndin hafði haft af honum lúrinn.
Móðuramman gat þess að það væri „ekki hægt að spilla þessu barni.“
December 12th, 2005 at 1:46 am
Til hamingju!!!!
December 14th, 2005 at 4:53 am
Til hamingju með systursoninn! Það munaði litlu að tilkoma hans yrði afmælisgjöf.
December 17th, 2005 at 12:26 am
Til hamingju með litla/stóra frænda, hann er svaka flottur! bkv, hb
January 5th, 2006 at 10:57 pm
Takk, takk og takk! En það munaði ekki litlu að hann yrði afmælisgjöf … það munaði engu. Magga Stína kúsína okkar á afmæli degi á undan mér … og hún átti Ágúst son sinn á afmælisdegi Dóru fyrir tæpum fjórum árum! Þær eru líklega kvittar hérmeð í afmælisgjöfum.