Væntumþykja

RX-8

Ég fékk nafnlaust sms í dag, þar sem ég gekk eftir Laugaveginum til að sækja bílinn minn á Grand Hótel Reykjavík eftir góðgleði gærkvöldsins.

Skilaboðin voru þessi:

From: OgVodafone

ther thykir vaent um
mözduna thina?
---
Sæktu tér nyja hringitòna à
ogvodafone.is - Og Vodafone

Ég beið eftir því næsta („Settu tha x m.kr. i omerktum sedlum undir bekkinn i austurhorninu a BSI klukkan tvo, annars heyrirdu mjukt malandi motorsud hennar ekki framar“) en það kom aldrei. Kannski átti ég að sækja þessa bannsettu hringitóna til að bjarga Mözdunni minni? Hún var alltént enn þar sem ég skildi við hana, og ómeidd.

Ég veit ekki um neitt samhengi sem gæti skýrt þetta — hef ekki rætt bílinn minn (sem mér þykir vissulega svolítið vænt um, svona að því marki sem mér þykir vænt um verksmiðjuframleidda dauða hluti almennt) við neinn síðustu daga.

Eina tengingin sem mér dettur í hug er að lokaprófið í Merkjum og kerfum var nýafstaðið þegar þetta sms barst; þetta gæti verið nemandi að hafa í hótunum við mig vegna yfirvofandi einkunnagjafar. Ég efa það samt. Eftir eitt misseri í Merkjum og kerfum á enginn eftir orku til illvirkja.

Skýringar óskast!

5 Responses to “Væntumþykja”

  1. Sæþór Says:

    Flottur bíll!

  2. Sæþór Says:

    Sæll
    Flottur bíll hjá þér! Vonandi helst hann svona

    Kveðja
    ;)

  3. Valur Says:

    HAHA… þetta er frekar fyndið…

    fyrrverandi nemandi í MoK-i… nú mosa ég bara

  4. Orri Says:

    Ég giska á að þetta sé óorsakatengt.

  5. GÞB Says:

    Sæþór: Tackså! (Þótt ég eigi reyndar voða lítið kredit í því hve flottur hann er :) ) Hann er óskemmdur enn.

    Valur: var þessi sálfræðitryllir semsagt frá þér, bannsettur þrjóturinn þinn?

    Orri: þessi var svo slæmur að hann hefði jafnvel verið mér sæmandi í fyrirlestri!

    Allir: afsakið að það skyldi taka næstum mánuð að komast í gegnum spamsíuna mína; hún missti sig aðeins.