Hinn eini sanni

Hinn eini sanni Gulli Briem Gervieintak

Hinn eini sanni
Gulli Briem

Einhver allt annar
Gulli Briem

Úr fimmtudagsmogganum:

[...] en með henni spila þeir Börkur Hrafn og Daði Birgissynir sem áður voru kenndir við Jagúar, Pétur Sigurðsson á bassa og okkar eini sanni Gulli Briem á trommum.

Hinn eini sanni! Eins gott að það verður ekki eitt af þessum bannsettu gervieintökum!

Mér er alveg sama. Eins og ég sé eitthvað sár? Ég er ekkert sár.

6 Responses to “Hinn eini sanni”

  1. Greifinn Says:

    Sættu þig bara við það.
    Það er bara einn sannur Gulli Briem með greini.

    Að sama skapi er bara einn RicXXXX ClaydXXXXX, hinn fullkomni píanóleikari. Amazon.com er með þetta frábæra tilboð: “The Very Best of RC” og “Number One Hits” á AÐEINS $44.48. Kýlið á það.

  2. Baal Says:

    Mér finnst þú ættir að prófa þessa “eini sanni Gulli Briem” hárgreiðslu.

  3. GÞB Says:

    Baal: ég prófa hana á hverjum morgni. Sjálfsánægjuhálfglottið með þrítugsbroshrukkuvottinum birtist hins vegar yfir cappuccinobollanum síðdegis.

    Greifi: fyrirgefðu að ég skyldi ritskoða kommentið þitt. Ég geri slíkt ekki nema brýnustu nauðsyn beri til. Það er nógu slæmt að leitarvélar beini til mín þeim sem leita að orðinu „Sagittarius“ á netinu … ég afbæri ekki að það færi að gerast líka þegar leitað er að sviðsnafni Kitsch-framleiðandans Philippe Pagès.

  4. GÞB Says:

    Ó mig auman! Ég gætti mín ekki. Það gerist nú þegar.

  5. Gummi Says:

    Já, þú hefur sannarlega breyst. Ég held svei mér þá samt að mér hafi líkað betur við hinn gamla “eina sanna” Gulla Briem. Hvenær var myndin til vinstri tekin af þér? Snemma í Menntó?

  6. GÞB Says:

    Bíddu við, hvorn okkar kallar þú „hinn gamla eina sanna“ Gulla Briem? Ég átta mig ekki alveg á hvort þessi preferens þinn er til að dissa mig eða peppa mig upp. :)

    Í öllu falli hefur þessi mynd ekki verið tekin af mér enn. (Afsakaðu útúrsnúninginn.) Það hlýtur samt að koma að því þegar útgefandi Earth Affair fær veður af höfundarréttarbroti mínu. Þá er von á afar ruglingslegu dómsmáli þar sem Gunnlaugur Briem er bæði ákærandi og ákærði. Liggur við að það væri efni í DV-frétt … þó bara neðanmáls á innsíðu, þar sem hvorugur okkar er eiturlyfjafíkill eða barnaníðingur eða á annan hátt söluvænn sori.

    Annars félli þessi myndnotkun væntanlega undir „fair use“ ef til kæmi … fyrir nú utan að aukaeintakið sem hér skrifar er óttalega sanngjarn og lítt lögsækinn maður, svo að „hinn eini sanni“ hlýtur að vera þeim mun sanngjarnari. :)

    Í tilefni alls þessa bulls dreif ég loksins í því að fletta upp tengslum okkar. Við erum fjórmenningar (þótt við séum bara tveir talsins): langafar okkar voru bræður, minn Sigurður Eggertsson Briem (1860-1952) og hans Páll Jakob Eggertsson Briem (1856-1904). Ég veit það þá næst þegar einhver spyr. Skyldi hann vera spurður jafnoft? :)