Töluorð og mælieiningar

Haðarrúnir --- Braille

Ofuríslenskað heiti fyrir blindraletur. Hér hefur Háfrónskuhreyfingunni orðið á í messunni dýrdeginu; þetta er enska stafrófið!

Fyrir tilviljun rakst ég á síðu um Töluorð og mælieiningar á kjarnyrtri íslensku.

Síðan reyndist vera hluti af stærra vefsvæði, aðsetri Háfrónskuhreyfingarinnar, sem leggur stund á „ofurmálhreinsun.“ Þar getur að líta skemmtilega orðalista á við Háfrónska hreinleikarýninn, og Kenningasmiðju þar sem meðal annars kemur fram íslenska nafnið á „molotov-cocktail“ — múspellsmilska!

Ég get ekki nógsamlega lýst því hversu þessi hraðlestur kætti mig; mun skoða þetta betur í betra tómi. Og vitanlega mun ég leggja mig fram um að nota þessi orð framvegis.

Vonandi veitir þetta þér svosem eins og skreppu eða lúkuþriðjung af gleði, eða fleygir þér nokkrar ruddur eða jafnvel arðurfar (a.m.k. nokkrar dyrgilstikur!) fram á við á menntaveginum.

Fjárinn. Nú verð ég glottandi eins og bjáni í allan dag.

One Response to “Töluorð og mælieiningar”

  1. Gunnar Hælhaldur Says:

    Þessi vefsíða veitti mér nímæltan tug brosvipra.