Andrúmsloft og jarðvegur

Þetta er á gólfinu í íbúð systur minnar.
Dettur þér í hug gott nafn á það?
Mig grunar nefnilega að þetta gæti verið spliff, donk og gengja — all-in-one útgáfan.

[...]Það er hins vegar Svarti-Pétur í stokknum. Stóru keðjurnar hafa í skjóli einokunar keyrt upp matarverð. Hreðjatak þeirra á markaðnum hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur. Ég tel að ríkisstjórninni beri skylda til þess að feta í fótspor verkalýðshreyfingarinnar og fara í viðræður við þá aðila, krefjast þess í nafni þjóðarheillar að þeir sýni ábyrgð og þeir lækki matarverð. [...] Ef fortölur duga ekki til, herra forseti, þá er það skoðun okkar í Samfylkingunni að Samkeppnisstofnun eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda.[...]

Össur Skarphéðinsson, í þingræðu 22. jan. 2002

[...]Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera?

Eitt getur hún gert, tekið undir með hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni og þingmönnum stjórnarandstöðunnar og ráðist gegn einokun hvar sem er, ekki síst á matvælamarkaðnum. Við höfum séð að þar eru að koma upp risar sem í skjóli ríkisstjórnarinnar ætla greinilega að fara sínu fram. [...]

Össur Skarphéðinsson, í þingræðu hálftíma síðar

[...]Við erum innflutningsþjóð. Við lifum á innflutningi að verulegu leyti. Við komumst ekki hjá því og breyting á mati á verði krónunnar okkar hlýtur að leiða til hækkandi vöruverðs, þ.e. ef gengið lækkar. Nú þegar það hækkar á nýjan leik jafnt og þétt leiðir það með sama hætti, og a.m.k. á að leiða til þess með sama hætti, að verðlag fari lækkandi og hagur manna styrkist hvað það varðar. Auðvitað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota aðstöðu sína. Auðvitað er 60% eignaraðild í matvælafyrirtækjum, verslunarfyrirtækjum í matvælaiðnaði, allt of há hlutdeild. Auðvitað er það uggvænlegt og sérstaklega þegar menn hafa á tilfinningunni að menn beiti ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi. Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum ef þær eru misnotaðar.

Davíð Oddson, í næstu ræðu á eftir.

Ingibjörg Sólrún virtist vera að ræða umhverfisvernd á Stöð 2 í kvöld, þar sem hún talaði svo mikið um andrúmsloft og jarðveg. En hún átti við pólitískt andrúmsloft haturs út í „ákveðin fyrirtæki,“ þungt loft sem hún vill meina að sé upprunnið úr Davíð Oddssyni. Svona loftslagstal gæti virst grunsamlega óljóst og huglægt og pómó — jafnvel loftkennt — en það eru óþarfar grunsemdir, því að hér fyrir ofan er beinhörð sönnun orða hennar: Davíð Oddsson stuðlaði bersýnilega að þessu andrúmslofti … með því að taka undir með þáverandi formanni Samfylkingarinnar.

Með góðum vilja er alveg hægt að sjá ræðu Davíðs sem einhvers konar heróp hans gegn Baugi … ef þess er gætt að vitna í hana án samhengisins við ræður Össurar, sem hún var svar við. Það hentar víst ekki núna að rifja upp fjandskap fyrrv. formanns Samfylkingarinnar út í Baug. Núna hentar að segja að fjandskapur út í Baug hafi verið einhver einkauppfinning Davíðs.

Ég er með kenningu. Vissulega skipaði Davíð ríkislögreglustjóra (í þolfalli). En ég hef Össur grunaðan um að hafa skipað ríkislögreglustjóra (í þágufalli) að veitast að Baugi. Þetta er eitthvað sem við vitum öll en þorum kannski ekki að horfast í augu við. Ríkislögreglustjóri er greinilega viljalaust handbendi Össurar. Ég finn það á hinu pólitíska andrúmslofti í þjóðfélaginu. Össur hefur gefið út þetta umtalaða veiðileyfi. Ef þú finnur það ekki, þá hefurðu bara ekki þann sans sem ég hef fyrir jarðvegi þjóðfélagsins. Þig skortir pólitíska græna fingur. Það eru straumar í hinu pólitíska umhverfi sem ekki ljúga. Ákveðin undiralda sem við skynjum svo að ekki verður um villst.

Þetta eru skemmtilegar leikreglur. Með því að láta hlutina ekki snúast um áþreifanlegar staðreyndir heldur andrúmsloft, jarðveg, strauma og undiröldu — pomobabble — getur þú sagt hvað sem þér sýnist. Þú þarft ekki að sanna neitt, þú þarft bara að hljóma nógu sannfærandi. Og salta það með „þetta er eitthvað sem við vitum öll“ svo að fólk þori nú ekki annað en trúa. Sniðugt.

Þess vegna segi ég, með miklum sannfæringarmætti, að Össur hefur þvingað ríkislögreglustjóra út í Baugsmálið. Gæti jafnvel hafa slúttað bréfi sínu til hans með hótunum á borð við „you ain’t seen nothing yet“ og „í guðs friði — en ekki mínum.“ Eða bíddunúvið … hverjum skrifaði hann aftur þau orð?

2 Responses to “Andrúmsloft og jarðvegur”

  1. Hjalti Says:

    Ég skil ekki alveg hvernig þetta fólk getur með góðri samvisku kvartað yfir einokun á einsleitum vörum (sem allir geta pantað að utan), þegar flestar perishable vörur s.s. áfengi, tóbak, mjólk, ostur, grænmeti og kjöt eru verðstýrð af ríkinu.

  2. Gunnar Says:

    hverjum skrifaði hann aftur þau orð?
    Ég skal rifja það upp fyrir þig.