„Íslandi allt“
… og fjandinn hirði rest
Kjörorð UMFÍ er „Íslandi allt.“ Skógar hafa verið ræktaðir og íþróttaafrek unnin með þessari brýningu. Ég vissi það ekki fyrr en ég fór að leita á netinu að dæmum um notkun orðasambandsins, eftir að ég hafði séð það í lokin á nafnlausum textamolum á spjallsíðum á netinu.
Téður frasi fer nefnilega í taugarnar á mér.
Gott og vel, þetta er sennilega voða fögur tjáning á ættjarðarást … en líklega fer þá bara ættjarðarást í taugarnar á mér líka. Af því að ættjarðarástinni fylgir það yfirleitt að elska skuli aðrar jarðir síður (og þá er stutt í að líta aðrar þjóðir hornauga), og „Íslandi allt“ felur í sér að önnur lönd eigi helst að hljóta ekkert meira en dreggjarnar.
Auðvitað er þetta vitleysa í mér. „Íslandi allt “ er vitanlega hugsað sem hvatningarorð til að gera sitt besta, sisvona af greiðvikni við föðurlandið, „þú skalt vinna Íslandi allt,“ þ.e. allt þitt. Það er ekki átt við að öll heimsins gæði eigi Ísland skilið fremur en aðrir. Og ég leitaði í gegnum allar vísanir sem vefréttin Google gaf mér á notkun þessa orðasambands, og hvergi sá ég það notað í þessum ljóta anda sem ég túlkaði það í. Hí á mig.
Ég er kannski bara svona viðkvæmur fyrir allri „us-and-them“ hugsun. Ég er ofsalega lítið gefinn fyrir þann tendens mannfólks að draga sig í flokka, „þessa ætla ég að láta mér annt um,“ og í skásta falli skítt með hina. Þetta kjörorð UMFÍ, sem og ættjarðarástarhjal margra, minnir mig því miður á þann hugsunarhátt. Það er kannski bara eitthvað sem ég þarf að láta rjátlast af mér.
December 1st, 2005 at 1:36 am
um… lets see the Gorge Bush picture was cool. Where did you get it? What was he thinking (oops i forgot he never thinks)i mean saying? Me and my brother like to use an editing programe to make fun of stupid people.:) Soooooooo… and I hope you have someone who speaks english, because every thing on this page is like Arabian or something. Right now my moms in the hostbital because some stupid company couldn’t take the bones out of salmon. I AM GOING TO SUE THAT COMPANY!!!!!! omg they are in 4 a surprise. Fugato, interesting name is it like german for Fark?If so why do you even have this company aswell as Fark. If not , why don’t you just join Fark. Um sorry my sister got sidetraked and we , for some reason don’t have a back space for our key board.But luckly we have internet.
January 5th, 2006 at 10:21 pm
Interesting that you should mention Arabic. But no, this is Icelandic. Fugato is a musical term, Italian, not German, and unrelated to Fark. This is not a company (and certainly nothing like Fark), it is a personal blog. I’m glad you have internet, sorry to hear about the space bar, and I hope your mother is feeling better. And sorry it took you over a month to get through my very enthusiastic spam filter!