Orðsmíði
Sko, ég var sisvona að hugsa. Um leitarvélar á netinu, þ.e. Google og allar hinar sem langar að vera eins góðar og Google.
Þær safna saman öllu mögulegu efni á netinu og flokka það. Svona hálfgert eins og að smala í réttir.
Og þær má spyrja um allan skrattann sem vita þarf, svona eins og prestarnir spurðu í Delfí til forna.
Mætti þá ekki kalla þær … vefréttir?

May 15th, 2005 at 1:10 pm
Það er mun auðveldara að segja Vé-Fréttir en Vef-Réttir svo vel fari. Það má vera að FR-ið sé bara svona sterkt þarna eða að fréttir sé of algengt orð?
Mér finnst erfitt að bera þetta fram þannig að áheyrslan sé almennilega á réttum stað. Það verður lítill sem enginn munur á þessum orðum í mínum lina reykvíska framburði og ég hugsa að þó ég sé að reyna að segja vefréttir muni fólk heyra véfréttir. :-O
Svo eru að fella eignarfallsenginguna burt. Þegar orð eru samsett þá er fyrra orðið alltaf í eignafalli. Vefs eða Vefjar, eftir því af hvaða skóla þú ert. Þess vegna yrði þetta annað hvort vefjarréttir eða vefsréttir.
Æh… Ég held að ég haldi mig við leitarvél, en góð tilraun samt :-)
May 15th, 2005 at 2:06 pm
Góð var hún kannski, en tilraun var hún ekki :-) … ég held ég fari varla að reyna að innleiða almenna notkun á þessu orði, ég slengdi hugmyndinni bara út svona í kvartkæringi. Og á örugglega eftir að nota það í þessu bloggi með sama hugarfari, og þeir fimm-sex sem lesa það munu fatta af samhenginu hvað við er átt, og munu hrista hausinn yfir sérviskunni í mér — fastir liðir :-)
Framburðaratriðið myndi vissulega trufla mig ef ég reyndi að nota þetta orð í töluðu máli — en ég er hvort eð er meira „ritmálgefinn“ en „talmálgefinn.“ Hm, málgefinn … það er skemmtilegt orð, meðal annars vegna þess að fyrri liðurinn í því er ekki í eignarfalli. Rétt eins og í orðunum vefrápari, vefsíða, vefsetur og vefsmíði. Og dalverpi, lögsaga, strákgemlingur, bóksala, orðheppni, ráðsnilld, o.s.frv. Ég sé því ekki fram á „svefnsvandræði“ ;-) af áhyggjum yfir eignarfallsendingunni. :-)
May 15th, 2005 at 8:08 pm
Það eru fleiri reglur um samsetningar en þetta; stafaútfellingar, bandstafir.
Ég held að okkur sé svipað alvara með þessu. :-)
Ég sé líka þar sem ég les þetta yfir núna að ég hefði mátt lesa þetta aðeins betur yfir. Það er nú svona; manni leiðist svo eigin texti að maður getur vart hugsað sér að þurfa að lesa hans sjálfur. :-D
May 15th, 2005 at 10:49 pm
Þið vitið ekki rassgat um hvað þið eruð að tala – enda aukvisar í þessari auvirðilegu umræðu um sauðfé og söfnun þess.
May 16th, 2005 at 1:08 am
Naunau, sjálfur Skralli mættur að trollast!
Gott og vel, við vitum kannski ekki rassgat. En það er líka allt í lagi; við þurfum ekki að vita það. ;-)