Skýringartexti

Looking stupid

Ég er enn og aftur að svara Gallup-könnun af góðmennsku minni. Hún er 48 A4-síður, nokkurþúsund krossar; góðmennska mín í garð Gallup er komin að þanmörkum, en það er eitthvert happdrætti fyrir þá sem taka þátt og ég er afar sigurviss, enda sérstaklega happdrægur.

Í þessari könnun er spurning af taginu „hversu miklu eða litlu máli skipta eftirfarandi atriði þig“ (ljót íslenska en þó skárri en „hversu sammála eða ósammála ertu eftirfarandi fullyrðingum“). Svosem ekki í frásögur færandi, en við spurninguna er þessi skýringartexti í boxi:

Liður sem skipta þig miklu máli og þú værir tilbúinn að borga mikið fyrir skipta þá miklu máli, en það sem skipta þig litlu máli og þú værir tilbúinn að fórna skipta þig þá litlu máli

… haa?

One Response to “Skýringartexti”

  1. Jói Says:

    Hér er vitaskuld um að ræða nafnorðið “liðra” (beygist eins og gildra) sem hefur merkinguna ljóð í mörgum liðum og hvorugkyns fleirtöluorðið “það” sem merkir fórnardýr eða fórnargjöf (orðið hefur sérkennilega fleirtöluhljóðvörpun en beygist eins og bað í eintölu).

    Kvæðið allt má túlka sem svo að hið andlega (liðurnar, þ.e. ljóðin) sé mikilvægara en það efnislega (fórnardýrið). Tvítekningin á að liðurnar skipti þig miklu máli og að þaðin skipti þig litlu máli virðist vera stílfærsla ljóðhöfundar og viljandi gert. Tvær útskýringar geta legið að baki.

    Fyrri útskýringin er að orðið liðra er oftast notað um ljóð á hlymreksformi (e. limerick) en í því formi eru endurtekningar mjög algengar. Sú seinni er að fleirtöluorðið það er tekið úr jiddísku, en í jiddísku er löng hefð fyrir að endurtaka og jafnvel þrítaka mikilvæga hluti, til dæmis er setningaformið “an X is an X is an X” (sem dæmi “an idiot is an idiot is an idiot”) algengt hjá þeim sem hafa jiddísku sem móðurmál en ensku sem annað mál.

    Gallup á hrós skilið fyrir að koma þessum boðskapi að. Það má líta svo á að hér sé Gallup að láta lesandann vita að þrátt fyrir þaðin sem Gallup er að bjóða til að fá fólk til að fylla út könnunina (verðlaunin) þá viti þeir að þátttakendur fylla hana út af hjartans góðmennsku.