Betra seint en aldrei?

Fékk þetta sent í tölvupósti í dag. Tómum tölvupósti, með þennan texta í Word-skjals-viðhengi! Fyrir birtingu hef ég ruglað fyrirtækisnafninu, svo að lesandanum sé allsendis ómögulegt að vita um hvaða fyrirtæki er að ræða ;-)

Ágæti umsækjandi.

Við biðjumst velvirðingar á því hve langan tíma úrvinnsla umsóknar þinnar hefur tekið.

Búið er að fara vandlega yfir umsókn þína um starf hjá SJE. Því miður er ekkert starf laust hjá okkur þar sem reynsla þín og menntun nýtist sem skyldi. Því getur ekki orðið af ráðningu hjá okkur að þessu sinni.

Fyrir hönd SJE hf. vil ég þakka þér fyrir að sýna áhuga á að starfa hjá okkur með því að sækja um starf.

Ég óska þér velfarnaðar í framtíðinni.

Virðingarfyllst,

f.h. SJE hf.

[jadajada]

Ég hafði sent þeim línu af rælni þegar ég var í atvinnuleit … fyrir u.þ.b. sjö mánuðum. Þeir segja satt: þeir fara greinilega vandlega yfir umsóknir!

Comments are closed.